Vatíkanið alltaf hresst

alltaf með á nótunum. Banna smokka meðan HIV er í sifelldri útbreiðslu. Fóstureyðingar eiga fullkomlega rétt á sér í mörgum tilfellum en þó þarf að hafa einhver höft á þeim. Ef konu er nauðgað og hún verður ófrísk, ef heilsu konu stafar hætta af meðgöngu eða ef kona verður ófrísk og hefur einfaldlega engan áhuga á því að eignast barn eru til dæmis að mínu mati mjög svo réttanlegar ástæður til að óska eftir fóstureyðingu. Það er margt fallegt í katólskri trú en einnig margt miður fallegt, virðast vera á móti flestu svo sem getnaðarvörnum, fóstureyðingum samkynhneigðum og svo framvegis. En sem betur fer kannski eru fæstir katólikkar ekki svona þenkjandi.

PS ég er ekki katólikki

 


mbl.is Vatíkanið segir fóstureyðingar vera hryðjuverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Er loksins komin aftur með netsamband en undanfarna daga er maður búinn að vera að standa í flutningumSmile Erum sem sagt að koma okkur fyrir en ástandið hérna er eins á á einhverju átakasvæði, dót útum allt en að sjálfsögðu byrjaði maður á því að græja tölvuna. Jæja best að kippa upp einhverjum kössum og fara svo að læra, hilsen í bili

Sorglegt

Að fötluð börn skuli vera í 50% meiri áhættu á því að verða fyrir kynferðisofbeldi en önnur börn er eitthvað sem má að mestu koma fyrir. Númer 1,2 og 3 er að veita þeim fræðslu og kynfræðslu, hvað má hvað má ekki og svo framvegis og nota réttu orðin yfir kynfærin. Einfaldlega grípa til aðgerða.
mbl.is Fötluð börn líklegri til að verða fyrir ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært framtak

Finnst það frábært hjá þessum krökkum að vekja athygli á þeim veruleika sem þau búa við. Þrátt fyrir að staða fatlaðra sé að mörgu leyti góð hér á landi er samt sem áður margt sem má mun betur fara. Fyrsta skrefið í þá átt held ég að ákveðin viðhorfsbreyting eigi sér stað hjá þjóðinni. Fatlaðir hafa nákvæmlega sömu þrár og langanir og allir aðrir en hafa síður en svo sömu tækifæri til að uppfylla þessar væntingar sínar. Meira svona
mbl.is Vortíska fatlaðra í Kringlunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert má

Það er furðulegt hversu þjóðkirkjan er viðkvæm fyrir gangrýni, það má ekkert um hana segja sem ekki þóknast þeim. Aðskilnaður ríkis og kirkju ætti að eiga sér stað sem fyrst. Þá loksins myndi raunverulegt trúfrelsi ríkja í landinu sem yrði öllum til góða. Allir trúarhópar sætu þá við sama borð og þjóðkirkjan þyrfti að fara hafa fyrir sínum söfnuði. Kirkju ætti í raun að reka líkt og fyrirtæki, hafa eitthvað um að vera sem gerir fólk áhugasamara um að nota þjónustu hennar. Ekki rekna á styrkjum og eins og staðan er í dag hjá þjóðkirkjunni þar sem kirkjur eru hálftómar messu eftir messu því athafnirnar eru ekki beint mjög spennandi. 
mbl.is „Við gátum ekki setið undir þessu ásamt mörgu öðru"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilegt

Frekar gáfulegar spurningar allar saman. Þetta á að koma í veg fyrir hryðjuverkastarfssemi og peningaþvætti en einhvern veginn efast ég um að þetta skili einhverjum árangri, hvorki hér á landi né erlendis. Sterkasta hlið glæpamanna hefur sjaldnast verið sú að segja sannleikannGetLost
mbl.is „Ertu hryðjuverkamaður?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt það væri slæmt

Maður hélt að dómskerfið væri slæmt hér á landi, en það virðist nú vera eitthvað verra þarna. Að fá 15 ára fanglesi fyrir að nauðga og myrða konur, kemur ekki fram hversu margar er einfaldlega skammarlegt. Veit ekki hvaða mildandi aðstæður valda því að menn fá svona dóma. Þessir glæpir áttu sér stað í miklum þjóðernisátökum, menn sem beita fyrir sig trú og uppruna við svona glæpi eru einfaldlega viðbjóður.
mbl.is Dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

úúúú karlmennskan

Mér er spurn um hversu mikil rola þessi maður hefur verið. Maður ræðst ekki á annað fólk, hvað þá fólk í hjólastól. Velti því líka fyrir mér hvers vegna enginn kom honum til hjálpar. Það er ekki eins og Lækjartorg sé úr alfaraleið.
mbl.is Barinn og rændur í hjólastól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekið af vef félagsmálaráðuneytisins

 

Snilldarframtak og maður vonar að þetta er það sem koma skal í þjónustu við fatlaða:

 Öndunarvélaþjónusta veitt

29.3.2007

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á tilraunaverkefni til tveggja ára um svonefnda notendastýrða þjónustu sem mun taka til fjögurra til sex einstaklinga sem þurfa á öndunarvélaþjónustu að halda vegna sjúkdóma eða slysa. Þjónustan gerir þeim kleift að fara ferða sinna og taka virkan þátt í samfélaginu með hjálp aðstoðarmanna í stað þess að vera bundnir öndunarvél á hjúkrunarstofnun.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tilkynntu í um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á ráðstefnunni mótum framtíð um félagslega þjónustu á Nordica hotel í dag.

„Þetta varðar sjálfræði, lífsgæði og mannlega reisn og er kærkomin viðbót við þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er þeim sem búa við fötlun hér á landi“, sagði Magnús Stefánsson.

„Þetta er stórkostlegur áfangi í því að veita tilteknum hópi einstaklinga tækifæri til að búa áfram heima en ekki á stofnun“, sagði Siv Friðleifsdóttir.

Ráðherrar félagsmála og heilbrigðis- og tryggingamála tilkynna á blaðamannafundi um öndunarvélaþjónustuÁkvörðunin byggist á tillögum nefndar um notendastýrða þjónustu sem starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins. Þessi tilhögun tíðkast orðið nokkuð í nágrannalöndum okkar, einkum á Norðurlöndum, og er upprunnin í Danmörku.

Evald Krog, formaður Muskelsvindfonden í Danmörku, sem sjálfur nýtur þjónustu af þessu tagi heima og heiman, hefur ásamt Guðjóni Sigurðssyni, formanni MND-félagsins, verið ötull talsmaður þjónustu af þessu tagi. Þeir tóku báðir þátt í blaðamannafundinum þar sem tilraunaverkefnið var kynnt.

„Þessi ákvörðun markar tímamót“, sagði Evald Krog. „Ég óska bæði stjórnvöldum og íslensku þjóðinni til hamingju.“

„Ég anda léttar í dag“, sagði Guðjón Sigurðsson. „Í dag er hátíð fyrir okkur MND-veika og fleiri. Viðhorfsbreyting er það sem við þurftum og kjarkur ráðamanna til að fara nýjar leiðir.“

Þjónustan verður einkum veitt á vettvangi félagsmálaráðuneytisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið annast fræðslu og þjálfun starfsfólks og útvegar nauðsynlegan tækjabúnað.


Furðulegt

Blygðunarsemi konunar hefur verið særð, hún leyfir honum kannski að taka mynd en ég efast um að hún hafi átt von á því að hann færi að sína öðrum þær. Tala ekki um ef þetta hefur átt sér stað á einhverjum litlum stað. Það að gaurinn hafi ekki verið með flaggað þegar hann sýndi myndirnar finnst mér ekki nægja til sýknu í svona máli.
mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir að taka mynd af naktri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Katrín Vilhelmsdóttir

Höfundur

Katrín Vilhelmsdóttir
Katrín Vilhelmsdóttir
I want to believe
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...018
  • Egyptaland1 227
  • Egyptaland1 086
  • Myndir 077
  • ...twinpeaks

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 592

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband