Tekið af vef félagsmálaráðuneytisins

 

Snilldarframtak og maður vonar að þetta er það sem koma skal í þjónustu við fatlaða:

 Öndunarvélaþjónusta veitt

29.3.2007

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að koma á tilraunaverkefni til tveggja ára um svonefnda notendastýrða þjónustu sem mun taka til fjögurra til sex einstaklinga sem þurfa á öndunarvélaþjónustu að halda vegna sjúkdóma eða slysa. Þjónustan gerir þeim kleift að fara ferða sinna og taka virkan þátt í samfélaginu með hjálp aðstoðarmanna í stað þess að vera bundnir öndunarvél á hjúkrunarstofnun.

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, tilkynntu í um ákvörðun ríkisstjórnarinnar á ráðstefnunni mótum framtíð um félagslega þjónustu á Nordica hotel í dag.

„Þetta varðar sjálfræði, lífsgæði og mannlega reisn og er kærkomin viðbót við þá fjölbreyttu þjónustu sem veitt er þeim sem búa við fötlun hér á landi“, sagði Magnús Stefánsson.

„Þetta er stórkostlegur áfangi í því að veita tilteknum hópi einstaklinga tækifæri til að búa áfram heima en ekki á stofnun“, sagði Siv Friðleifsdóttir.

Ráðherrar félagsmála og heilbrigðis- og tryggingamála tilkynna á blaðamannafundi um öndunarvélaþjónustuÁkvörðunin byggist á tillögum nefndar um notendastýrða þjónustu sem starfar á vegum félagsmálaráðuneytisins. Þessi tilhögun tíðkast orðið nokkuð í nágrannalöndum okkar, einkum á Norðurlöndum, og er upprunnin í Danmörku.

Evald Krog, formaður Muskelsvindfonden í Danmörku, sem sjálfur nýtur þjónustu af þessu tagi heima og heiman, hefur ásamt Guðjóni Sigurðssyni, formanni MND-félagsins, verið ötull talsmaður þjónustu af þessu tagi. Þeir tóku báðir þátt í blaðamannafundinum þar sem tilraunaverkefnið var kynnt.

„Þessi ákvörðun markar tímamót“, sagði Evald Krog. „Ég óska bæði stjórnvöldum og íslensku þjóðinni til hamingju.“

„Ég anda léttar í dag“, sagði Guðjón Sigurðsson. „Í dag er hátíð fyrir okkur MND-veika og fleiri. Viðhorfsbreyting er það sem við þurftum og kjarkur ráðamanna til að fara nýjar leiðir.“

Þjónustan verður einkum veitt á vettvangi félagsmálaráðuneytisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið annast fræðslu og þjálfun starfsfólks og útvegar nauðsynlegan tækjabúnað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Katrín Vilhelmsdóttir

Höfundur

Katrín Vilhelmsdóttir
Katrín Vilhelmsdóttir
I want to believe
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...018
  • Egyptaland1 227
  • Egyptaland1 086
  • Myndir 077
  • ...twinpeaks

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 483

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband