Bleik í gegn

Hellú hellú

Sama staða hér í raun og veru. Fór aftur á spítalann í síðustu viku og er víst ennþá ristarbrotinUndecided og heimtaði læknirinn að skella nýju gifsi á. Eftir samningaumleitanir samþykkti ég það og fékk fagurbleikt gifsi, hvers vegna ekki að hafa dálítið gaman af þessu fyrst maður er að þessu á annað borð. Fer svo aftur í næstu viku og er ég að vonast til að fá göngugifsi og að myndatakan sýni ekki fram á neinar skemmdir í kringum brotið. Samt hálfglatað að vera í þessu ástandi í verkefnavinnu og próflestri, og svo ekki sé minnst á að veikindafríið verður ansi langt þegar upp á báða fætur verður staðið. En sem betur fer er Snorri svo vel upp alinn og vel gerður að hann sér jafnt um mig og að þrifa heimilið og þvottinn. Svei mér þá ef hann er ekki bara ágætis kokkur líka. Svo á ég náttúrulega bara yndislegustu bekkjarfélaga í heimi sem hafa verið í hlutverkum leigubílstjóra, töskubera og sáluhjálpara hlustandi á tuðið í mér. En að öllum ólöstuðum held ég samt að ég verði að tilnefna Önnu Maríu sem samverja ársins í þessu máli.

Froskurinn okkar hann Karías dó fyrir viku síðan þannig að núna um helgina fórum við og keyptum nýjan félaga handa Baktusi, sem reyndar hefur seinna nafnið Íþróttaálfur. Sá nýji byrjaði á því að labba yfir hausinn á Baktusi og höfum við skýrt hann Herkúles, þeir virðast samt  vera sælir og sáttir með lífið og tísta allan daginn.

En best að henda sér í siðfræðina og reyna að koma einhverju frá fyrir svefninn en ég hendi inn einni mynd af því bleikaWhistling

Myndir 077


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Flottust ertu kona  takk fyrir hlýjar kveðjur.

Kristín Snorradóttir, 27.11.2007 kl. 00:39

2 identicon

ég samhryggist með froskinn en til hamingju með Iþróttaálfinn

bleikur rúlar

kv.

Þurý (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 10:33

3 identicon

Takk fyrir tilnefninguna... Ég vil nú nota tækifærið og þakka þér fyrir stuðningin í dag... er óendanlega þakklát fyrir hann... Sjáumst hressar á morgun..

Knús og Kram

Anna María (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 19:56

4 identicon

Stendur þig eins og hetja

Hildur Ýr (IP-tala skráð) 28.11.2007 kl. 16:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Katrín Vilhelmsdóttir

Höfundur

Katrín Vilhelmsdóttir
Katrín Vilhelmsdóttir
I want to believe
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...018
  • Egyptaland1 227
  • Egyptaland1 086
  • Myndir 077
  • ...twinpeaks

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 504

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband