Yndislegar tvær vikur:)

Seinustu tvær vikur hafa verið frekar skrautlegar hjá mér. Mánudaginn í síðustu viku fór ég og það voru skornir í burtu tveir litlir fæðingarblettir. Á miðvikudeginum átti ég síðan góða kvöldstund með Hildi vinkonu á þegar við fórum á Andrea Bochelli tónleikana, hefur aðdáun mín á manninum bara aukist. En síðan hófst fjörið, á fimmtudeginum fékk ég hina þrælskemmtilegu ælupest sem mér gekk ekki að yfirvinna og endaði ég núna mánudaginn síðasta á bráðamóttöku með vökva í æð og einhver ógleðilyf. Á þriðjudeginum var ég farin að hressast en tók þá uppá því að missa hreinlega lappirnar í stiganum heima hjá mér og endaði aftur á spítalanum, í þetta skiptið ristarbrotin. Ég er sem sagt farin að hallast að því að það sé einhver óheillastjarna yfir mér þessa dagana. En ég verð samt að segja að ég á yndislegan mann sem snýst í kringum mig, ekki eru bekkjarsystkini mín heldur slæm:) Anna María þvældist með mér á spítalann í gær og hékk þar með mér og svo hafa þau verið að hringja í mig og athuga með mig og bjóða fram aðstoð sína. Hugs and kisses

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu dúllan mín ... var að spá í hvort ekki væri hægt að fá stórar bómullar- rúllur og vefja þér inn fram að jólum En allt er þegar þrennt er!

Kolla (IP-tala skráð) 8.11.2007 kl. 22:24

2 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Hrakfalladísin mín þar sem þú ert þokkafull á skautum ertu náttúrulega bara geðveikt sexý á hækjum  Spurning hvort verri helmingurinn þinn þurfi ekki að fara að gæta af þeim betri sínum  en honney þú veist að þú átt mig að jafnt í nauðum sem vellystingum svo ekki hika kallaðu og ég mæti gallvösk í galla með súpermann merki og bjarka þér.

Hugs and kisses

Kristín Snorradóttir, 8.11.2007 kl. 23:40

3 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Hummmm...bjarka þér.....nei bjarga þér....... hver er þessi bjarki?????????????

Kristín Snorradóttir, 8.11.2007 kl. 23:41

4 identicon

Ég segi eins og Kolla, allt þegar þrennt er.... nú er bara bjart framundan og allar hrakfarir að baki 7,9,13..... Knús og Kram

Anna María (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 15:12

5 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Bara að kasta inn kveðju.... vona að ristinn sé betri.....knús

Kristín Snorradóttir, 12.11.2007 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Katrín Vilhelmsdóttir

Höfundur

Katrín Vilhelmsdóttir
Katrín Vilhelmsdóttir
I want to believe
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...018
  • Egyptaland1 227
  • Egyptaland1 086
  • Myndir 077
  • ...twinpeaks

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband